Beint í efni
Merki Stjörnugrís hf.

Stjörnugrís hf.

Um okkur


Upphafið að varanlegum svínabúskap fjölskyldunnar má rekja aftur til ársins 1935 þegar fyrstu gylturnar voru keyptar.

Búin okkar

Sjö bú, séð úr lofti. Veldu bú og skoðaðu umhverfið.

Stjörnugrís úr lofti

Brautarholt

1 / 7

Búin okkar

Brautarholt

1 / 7

Stjörnugrís á skjánum

Nýjasta herferðin og svipmyndir frá Kótelettunni 2026.

Nýjasta herferðin

Álegg frá Stjörnugrís

Nýjasta herferðin

Pylsur frá Stjörnugrís

Fólkið og stemningin

Kótelettan 2026

Hópur við grillið í tjaldi Stjörnugríss á Kótelettunni

Saman á Kótelettunni

Stjörnugrís á Kótelettunni 2026.

Sagan okkar


Fjórar gyltur árið 1935

Upphafið að varanlegum svínabúskap fjölskyldunnar má rekja aftur til ársins 1935 þegar fyrstu gylturnar voru keyptar. Þær voru fjórar að tölu en eru nú 1.500, þegar þriðja kynslóðin er tekin við rekstrinum.

Eskihlíð, Lundur, Vallá

Þessi búskapur var upphaflega í Eskihlíð við Miklatorg (þar sem nú er Konukot) í rúm 25 ár en þá var búið flutt að Lundi í Kópavogi. Síðan liðu 30 ár og enn var búið flutt um set, nú að Vallá á Kjalarnesi.

Búin, sláturhúsið og kjötvinnslan

Stjörnugrís rekur sjö bú: Brimnes, Gil, Melar, Sléttaból, Bjarnastaðir, Hýrumelar og Brautarholt. Lengi vel var slátrunin keypt utan frá, en með tímanum reyndist hagkvæmara að hafa hana innan fyrirtækisins. Fullkomið sláturhús er nú í Saltvík og nýjasta viðbótin er kjötvinnsla, sem tók til starfa árið 2015. Þetta þýðir að kjötið er eins ferskt og framast má vera, beint í vinnslu og þaðan í dreifingu.

Beint frá bónda til borðs.

Búið í tölum

Fjórar tölur, allar úr sögunni hér að ofan.


  • 1935

    Árið sem búskapurinn hófst

    Gylturnar voru fjórar.

  • 1.500

    Gyltur í dag

    Þriðja kynslóðin er tekin við.

  • 7

    Bú

    Brimnes, Gil, Melar, Sléttaból, Bjarnastaðir, Hýrumelar og Brautarholt.

  • 2015

    Eigið sláturhús og kjötvinnsla

    Kjötvinnsla í Saltvík.

Fagmennskan


Hjá okkur starfa fagmenn í kjötiðnaði, þar á meðal landsliðsmenn.

Gæði og ábyrgð

Úr gæðahandbók Stjörnugríss, þeim reglum sem hvert starf í Saltvík fylgir.


  • Gæði í fyrsta sæti

    Gæði, matvælaöryggi og fagleg framsetning eru í fyrsta sæti. Hvert skref frá búi að verslun er meðhöndlað sem mikilvægur hlekkur: slátrun, kæling, vinnsla og flutningur.

  • Kælikeðjan

    Kælivara er geymd við 0 til 4 °C og frystivara undir -18 °C. Kjarnhiti er mældur í miðju vörunnar, þar sem hún er þykkust.

  • Hreinlæti í vinnslu

    Allur búnaður er þrifinn og sótthreinsaður fyrir hverja vakt. Tæki fara ekki á milli deilda og strangar reglur gilda um hlífðarfatnað.

  • Bláu plástrarnir

    Jafnvel plástrarnir eru bláir. Þeir sjást strax á vörunni og málmleitartæki nema þá.

  • Slátrun og vinnsla á einum stað

    Sláturhúsið og kjötvinnslan eru bæði í Saltvík. Kjötið fer beint í vinnslu og þaðan í dreifingu.

  • Framúrskarandi fyrirtæki

    Stjörnugrís var í hópi Framúrskarandi fyrirtækja Creditinfo árið 2021.

Stefnurnar

Jafnlaunastefna og jafnréttisáætlun Stjörnugríss hf.


Jafnlaunavottun

Stjörnugrís hf. hefur innleitt jafnlaunakerfi skv. ÍST 85:2012 á grundvelli 7. gr. laga nr. 150/2020 um jafnlaunavottun sem nær til alls starfsfólks óháð starfsstöð með jafnlaunastefnu þessa sem grunn.

Leiðarljós

Við erum eftirsóknarverður vinnustaður þar sem jafnrétti og jafnræði kynja er virt í hvívetna og öll kyn hafa jöfn tækifæri til að nýta eigin atorku og þróa hæfileika sína.

Saltvík 1, 162 Reykjavík

Sími 531-3000 · kt. 600667-0179